Viðskipti með hluti í Alvotech (NASDAQ: ALVO) hefjast í dag á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi. Félagið verður skráð í Stokkhólmi undir auðkenninu „ALVO SDB“. Skráningu Alvotech í kauphöllina í Stokkhólmi er ætlað að auka sýnileika félagsins hjá markaðsaðilum í Skandinavíu og Evrópu, auka viðskipti með hluti í félaginu og breikka hluthafahópinn. Bréf Alvotech verða nú skráð samhliða á þremur aðalmörkuðum, Nasdaq í Bandaríkjunum, Nasdaq á Íslandi og Nasdaq í Stokkhólmi.
Við lítum á skráninguna í Stokkhólmi sem þjónustu við núverandi hluthafa eða þá sem hyggjast fjárfesta í félaginu og að hún muni stuðla að auknum viðskiptum með bréf í félaginu. Hlutabréfamarkaðurinn í Stokkhólmi er einn sá stærsti í Evrópu, sérstaklega í viðskiptum með bréf fyrirtækja í heilbrigðisgeiranum. Skráning Alvotech á Nasdaq í Stokkhólmi mun stuðla að því að breiðari hópur markaðsaðila í Skandinavíu og Evrópu sem fjárfesta í líftækni- og lyfjafyrirtækjum kynnist Alvotech og geti fjárfest í félaginu. Viðbrögð markaðsaðila sem við höfum fundað með að undanförnu og umframeftirspurn í útboðinu sem lauk í síðustu viku, bendir til mikils áhuga.
Útboð í tengslum við skráningu félagsins á markaðinn í Stokkhólmi, sem náði aðeins til fjárfesta í Svíþjóð, lauk föstudaginn 16. maí sl. Mikill áhugi var meðal almennra fjárfesta á að eignast hluti í Alvotech og eftirspurn margföld á við framboð. Alls fengu meira en 3.000 nýir hluthafar afhent sænsk heimildarskírteini (SDR), sem eru ígildi hlutabréfa í Alvotech. Í boði voru 441.600 SDR. Gengi í útboðinu var 1.167,8 krónur (87,51 sænskar), sem jafngildir 90% af vegnu meðalverði hluta í Alvotech á útboðstímabilinu, 9.-16. maí.
Alvotech býður hluthöfum sem áttu bréf í félaginu við skráninguna í Stokkhólmi að breyta hlutabréfum sínum í SDR og mun standa straum af þóknunum vegna þessarar yfirfærslu til Euroclear verðbréfamiðstöðvarinnar í Svíþjóð og DNB Bank ASA í Svíþjóð, sem sér um útgáfu heimildarskírteinanna. Tilboðið gildir aðeins fyrir núverandi hluthafa í tólf mánuði frá skráningunni Stokkhólmi. Hluthafar þurfa þó að standa skil á öðrum þjónustugjöldum, sem gætu verið innheimt af vörsluaðila, miðlara eða viðskiptabanka. Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum eru beðnir um að senda fyrirspurn á póstfangið sdr@dnb.se.