· Samruni við Alvotech var samþykktur á hlutahafafundi Oaktree Acquisition Corp. II í dag og stefnt er að því að hann taki gildi 15. júní.
· Í kjölfarið geta viðskipti með hlutabréf Alvotech undir heitinu „ALVO“ hafist á Nasdaq markaðnum í New York 16. júní.
· Einnig hefur Nasdaq OMX staðfest að viðskipti með bréf félagsins geti hafist á First North Growth markaðnum á Íslandi þann 23. júní, eftir formlega staðfestingu á skráningarlýsingu félagsins.
Hluthafafundur í sérhæfða yfirtökufélaginu Oaktree Acquisition Corp. II („OACB“) samþykkti í dag samruna við Alvotech S.A. og Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum. Hlutabréf í Alvotech verða þá tekin til viðskipta á NASDAQ markaðnum í New York 16. júní. Einnig er gert ráð fyrir að viðskipti með hlutabréf Alvotech geti hafist á Nasdaq First North Growth markaðnum í Reykjavík 23. júní. Á báðum mörkuðum verða hlutabréfin auðkennd „ALVO“.
Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki, stofnað af Róberti Wessman, sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins, til þess að tryggja hámarksgæði. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (NYSE and TASE: TEVA; markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (TSE: 4554; Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (NSE: CIPLA; Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (SWX:DKSH; Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (NASDAQ og TASE: KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (1795:TT; Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).