Skip Navigation

Alvotech heldur uppgjörsfund fyrir árið 2023 í beinu streymi þann 21. mars nk. kl. 12:00 að íslenskum tíma

Business
05 March 2024
  • Fjárfestadagur, sem einnig verður sendur út á vefnum, verður haldinn föstudaginn 22. mars nk. 

Alvotech (NASDAQ: ALVO) birtir ársuppgjör fyrir 2023, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum, að kvöldi miðvikudagsins 20. mars nk.  Þá verður haldinn uppgjörsfundur fyrir fjárfesta, með aðgengi í beinu streymi, fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 12:00 á hádegi að íslenskum tíma.

Streymi af uppgjörsfundinum, sem fer fram á ensku, verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Alvotech, https://investors.alvotech.com undir liðnum News and Events – Events and Presentations. Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið, sem aðgengileg verður í 90 daga.  

Föstudaginn 22. mars nk., heldur Alvotech fjárfestadag, sem einnig verður aðgengilegur í vefstreymi. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðissalnum, Hótel Parliament við Austurvöll frá kl. 14:00-16:00. Gestir eru vinsamlegast beðnir um að skrá þátttöku fyrir 15. mars nk. á síðunni https://www.alvotech.is/fjarfestadagur-alvotech-2024. Við skráningu er einnig hægt að biðja um hlekk á vefstreymið.