Alvotech (NASDAQ: ALVO) og STADA tilkynntu í dag að fyrirtækin hafi útvíkkað samstarf sitt með samningi um markaðssetningu AVT03, fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia og Xgeva (denosumab) sem er nú á lokastigi klínískra rannsókna. Frumlyfin eru annars vegar notuð til meðferðar við beinþynningu og hins vegar við sjúkdómum í beinum sem tengjast krabbameini.
Samkvæmt samningnum sér Alvotech um alla þróun og framleiðslu, en STADA fær rétt til sölu og markaðssetningar. STADA fer með sameiginlegan rétt á Evrópska efnahagssvæðinu og í Bretlandi, en einkarétt í nokkrum Mið-Asíuríkjum og Mið-Austurlöndum.
Samhliða samningnum um AVT03 hafa samstarfsaðilarnir ákveðið að útvíkka réttindi STADA til sölu og markaðssetningar á líftæknilyfjahliðstæðum Alvotech við Humira (adalimumab) og Stelara (ustekinumab). Þau ná nú einnig til nokkurra Mið-Asíuríkja. Þá endurheimtir Alvotech réttindi til sölu og markaðssetningar á AVT06, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Eylea (aflibercept).
AVT03 er einstofna mótefni og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Prolia og Xgeva sem bæði innihalda denosumab. Denosumab beinist að og binst með mikilli sækni og sértækni við RANKL og kemur í veg fyrir virkjun viðtaka hans, svokallað RANK. Fyrirbygging RANKL/RANK tengingarinnar minnkar endurupptöku beina og beineyðingu af völdum krabbameins. AVT03 er líftæknilyfjahliðstæða í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.
Áætlað er að 32 milljónir Evrópubúa, eða tæp 6% íbúa álfunnar sem náð hafa 50 ára aldri, hafi verið með einkenni beinþynningar á árinu 2019, samkvæmt nýjustu gögnum International Osteoporosis Foundation (IOF), samtaka sem beita sér fyrir bættum hag sjúklinga með beinþynningu. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem greindust með einkenni beinþynningar, eða fjórir af hverjum fimm einstaklingum, sem eru 25,5 milljón manns, voru kvenkyns. IOF áætlar að beinn kostnaður á árinu 2019 vegna beinbrota sem rekja má til beinþynningar hafi samanlagt numið um 8.500 milljörðum króna (56,9 milljörðum evra) í Evrópusambandsríkjunum, Sviss og Bretlandi.