Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að samningar hefðu náðst við svissneska lyfjafyrirtækið Sandoz, um sölu og markaðssetningu í Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi á nokkrum fyrirhuguðum hliðstæðum sem Alvotech þróar og framleiðir.
Samningarnir við Sandoz eru liður í að tryggja aðgengi að helstu mörkuðum heims fyrir nýjar hliðstæður sem við erum að þróa, áður en markaðsleyfi er veitt. Við höfum lagt áherslu á að byggja upp fullkomna aðstöðu til að samþætta rannsóknir, þróun og framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum. Samningarnir staðfesta mikilvægi þessarar stefnu og sterka stöðu Alvotech innan iðnaðarins. Samvinna við söluaðila með sérþekkingu á viðkomandi mörkuðum gerir okkur kleift að auka aðgengi sjúklinga að hagkvæmum líftæknilyfjum um leið og við beitum aðhaldi í ráðstöfun fjármagns.
Samningurinn um sölu í Kanada fjallar um fyrirhugaða hliðstæðu á sviði augnsjúkdóma, sem verður afhent í áfylltri sprautu. Fyrir Ástralíu og Nýja-Sjálandi sömdu aðilarnir um sölu á þremur fyrirhuguðum hliðstæðum, til meðferðar við ónæmis- og meltingarsjúkdómum. Þær verða þróaðar í nokkrum mismunandi lyfjaformum. Sandoz mun sjá um að skrá hliðstæðurnar og markaðssetningu þeirra, í nánu samstarfi við Alvotech sem ber ábyrgð á allri lyfjaþróun, klínískum rannsóknum og framleiðslu og afhendir fullbúnar vörur. Félögin ætla að vinna að bættu aðgengi sjúklinga í viðkomandi löndum að hágæða líftæknilyfjum með því að tryggja markaðsleyfi fyrir hliðstæðurnar og öflugri markaðssetningu.
Sandoz er svissneskt lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í samheitalyfjum og líftæknilyfjahliðstæðum. Félagið var stofnað árið 1886 en rann síðan saman 110 árum síðar við Ciba-Geigy svo úr varð Novartis. Sandoz nafnið var notað næstu árin sem vörumerki fyrir samheitalyf og líftæknilyfjahliðstæður innan samstæðunnar. Sandoz var svo klofið frá Novartis árið 2023 og haslaði sér aftur völl sem sjálfstætt félag.

