- Advanz Pharma fær rétt til að markaðssetja AVT23, fyrirhugaða líftæknilyfjahliðstæðu við Xolair® (omalizumab) á Evrópska efnahagssvæðinu, í Bretlandi, Sviss, Kanada, Ástralíu og á Nýja Sjálandi
Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag um samning við Advanz Pharma, um markaðssetningu AVT23, fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu við Xolair (omalizumab). Samningurinn nær til Evrópska efnahagssvæðisins, Bretlands, Sviss, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálands.
Samkvæmt samningnum mun Alvotech sjá um þróun og framleiðslu en Advanz Pharma sér um skráningu og markaðssetningu lyfjanna. Heildarsala á frumlyfinu á þeim markaðssvæðum sem samningurinn nær til er um 140 milljarðar íslenskra króna á ári (1 milljarður Bandaríkjadala) samkvæmt upplýsingum frá IQVIA.
Um AVT23
Í febrúar 2022 tilkynnti Alvotech um samning við BiosanaPharma um sameiginlega þróun AVT23 (omalizumab). Omalizumab er einstofna mótefni sem binst við IgE og er notað til meðferðar við ofnæmisastma og langvinnri nef- og skútabólgu með sepageri í nefi. AVT23 er lyf í þróun og hefur ekki hlotið markaðsleyfi.