- Jákvæðri umsögn lyfjanefndarinnar verður vísað til framkvæmdastjórnar ESB sem tekur ákvörðun um veitingu markaðsleyfis á Evrópska efnahagssvæðinu
- Tekjur af sölu Stelara® í Evrópu nema um 380 milljörðum króna á ári og er það eitt af tíu mest seldu lyfjum álfunnar
Alvotech (NASDAQ: ALVO) og STADA Arzneimittel (STADA) tilkynntu í dag að mannalyfjanefnd Lyfjastofnunar Evrópu (CHMP) hafi veitt jákvæða umsögn vegna umsóknar um markaðsleyfi fyrir Uzpruvo (AVT04), líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara (ustekinumab) sem Alvotech hefur þróað.
Uzpruvo er jafnframt fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan við Stelara sem fær jákvæða umsögn vegna umsóknar um markaðsleyfi í Evrópu. Jákvæðri umsögn lyfjanefndarinnar verður vísað til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem tekur ákvörðun um veitingu markaðsleyfis, sem gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu.
Alvotech og STADA gengu fyrst til samstarfs um þróun og sölu líftæknilyfjahliðstæða árið 2019. Alvotech sér um þróun og framleiðslu en STADA hefur einkarétt til markaðssetningar í Evrópu. STADA markaðssetur nú fimm líftæknilyfjahliðstæður, þar á meðal Hukyndra (AVT02), hliðstæðu í háum styrk við Humira sem Alvotech þróaði og framleiðir.
Samstarfsaðilarnir tilkynntu í febrúar sl. að Lyfjastofnun Evrópu hefði samþykkt að taka til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT04, meðal annars að teknu tilliti til jákvæðrar niðurstöðu úr klínískri rannsókn á sjúklingum með miðlungsmikinn og verulegan psoriasis sem sýndi að AVT04 hefur sömu klínísku virkni og samanburðarlyfið Stelara.
Ustekinumab er einstofna mannamótefni. AVT04 er framleitt með sömu tegund frumulínu og framleiðsluaðferð og viðmiðunarlyfið Stelara. Ustekinumab binst IL-12 og IL-23 frumuboðefnunum í ónæmiskerfinu, og truflar með því leiðir annarra frumuboðefna sem eru meginþættir í meinafræði ákveðinna ónæmismiðlaðra sjúkdóma, svo sem Chrons sjúkdómsins, sóra (psoriasis) og sóraliðagigt.
Um 95.000 sjúklingar í fjórum stærstu ríkjum Evrópusambandsins og Bretlandi nota nú Stelara. Það er eitt af tíu mest seldu lyfjum Evrópu, en tekjur af sölu þess á Evrópumarkaði námu um 380 milljörðum króna á síðasta ári. Framboð líftæknilyfjahliðstæða sem geta keppt við frumlyfið þegar einkaleyfi á því rennur út, mun stuðla að auknu aðgengi sjúklinga og draga úr kostnaði fyrir evrópsk heilbrigðiskerfi.
Um STADA Arzneimittel AG
Höfuðstöðvar STADA Arzneimittel AG eru í Bad Vilbel í Þýskalandi. Fyrirtækið starfar á þremur meginmörkuðum, samheitalyfjum, sérlyfjum og almennum lækningavörum. STADA Arzneimittel AG markaðsetur vörur í um 120 löndum um allan heim. Á fjárhagsárinu 2022 voru sölutekjur samsteypunnar um 3.797 milljónir evra. Í lok síðasta árs störfuðu 13.138 manns hjá STADA um allan heim.