Samstarf Fuji og Alvotech nær nú til sex líftæknihliðstæðulyfja í þróun.
Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech Holdings S.A. („Alvotech“), og japanska lyfjafyrirtækið Fuji Pharma („Fuji“, kauphöllin í Tókýó: 4554) tilkynntu í dag að þau hefðu gert samkomulag um að auka við samstarf sitt í þróun og markaðssetningu líftæknihliðstæðulyfja í Japan.
Samkvæmt samningnum hlýtur Fuji rétt til sölu-og markaðssetningu á ótilgreindu líftæknihliðstæðulyfi, sem nú er á fyrstu stigum þróunar. Alvotech fær greiðslu við undirritun og síðan áfangagreiðslur eftir framvindu lyfjaþróunar, auk hlutdeildar í sölu á markaði. Með nýja samkomulaginu er nýju líftæknihliðstæðulyfi bætt við samstarfið milli Alvotech og Fuji. Fyrirtækin tilkynntu fyrst um samstarf sitt árið 2018, og verða nú líftæknihliðstæðulyfin sem fyrirtækin eiga í samstarfi um sex talsins.
Japanski markaðurinn er sá þriðji stærsti á heimsvísu þegar horft er til sölu lyfja, samkvæmt markaðsrannsóknum IQVIA.
Þann 7. desember 2021 tilkynntu Alvotech og Oaktree Acquisition Corp. II (NYSE: OACB.U, OACB, OACB WS) („OACB“), sérhæft yfirtökufélag sem styrkt var af hlutdeildarfélagi Oaktree Capital Management, L.P., að fyrirtækin hefðu gert endanlegan samning um samruna fyrirtækjanna. Þegar samruninn er genginn í gegn er áætlað að viðskipti með verðbréf sameinaða fyrirtækisins verði á NASDAQ undir tákninu „ALVO“.
Nánari upplýsingar hér.