Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði gert samstarfssamning við Dr. Reddy’s Laboratories SA, dótturfyrirtæki Dr. Reddy’s Laboratories Ltd. (“Dr. Reddy’s”) um sölu- og markaðssetningu AVT03, líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Prolia og Xgeva, sem bæði innnihalda denosumab. Dr. Reddy er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar á Indlandi en starfsemi um allan heim.
Prolia og Xgeva eru líftæknilyf við ýmsum þrálátum sjúkdómum sem tengjast beinum, þar með talið beinþynningu kvenna eftir tíðahvörf og er notað til að fyrirbyggja einkenni frá beinum hjá fullorðnum með langt gengna illkynja sjúkdóma sem tengjast beinum.
Alvotech þróar og mun framleiða lyfið, en Dr. Reddy‘s mun sjá um skráningu og markaðssetningu. Samningurinn gerir ráð fyrir fyrirframgreiðslu til Alvotech og árangurstengdum greiðslum til félagsins við helstu áfanga í lyfjaþróun og markaðssetningu, auk hlutdeildar í tekjum. Dr. Reddy‘s mun hafa einkarétt til að selja lyfið í Bandaríkjunum en fer með sameiginlegan rétt til markaðssetningar í Bretlandi og öðrum ríkjum Evrópu.
Dr. Reddy’s er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki, stofnað árið 1984, með höfuðstöðvar í Hyderabad á Indlandi, sem markaðsetur frumlyf, samheitalyf og líftæknilyfjahliðstæður. Félagið starfar á mörkuðum í Bandaríkjunum, Indlandi, Kína, Brasilíu, Evrópu og Asíu. Líftæknilyfjadeild Dr. Reddy’s vinnur að þróun, framleiðslu og markaðssetningu líftæknilyfjahliðstæða við ónæmissjúkdómum og krabbameini. Félagið markaðssetur nú sex líftæknilyfjahliðstæður alþjóðlega.
AVT03 er einstofna mótefni og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Prolia og Xgeva, tvö líftæknilyf sem innihalda denosumab í mismunandi lyfjaformi. Prolia er líftæknilyf til meðferðar við beinþynningu eftir tíðahvörf hjá konum og við beintapi hjá körlum og konum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum [1]. Xgeva er gefið til að fyrirbyggja einkenni frá beinum, svo sem sjúkleg beinbrot hjá fullorðnum með langt gengna illkynja sjúkdóma sem tengjast beinum [2]. Það er einnig gefið til meðferðar við risafrumuæxli í beinum. Í janúar sl. tilkynnti Alvotech jákvæðar niðurstöður úr klínískri rannsókn þar sem borin voru saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleiki AVT03 og Prolia í heilbrigðum einstaklingum. Klínísk rannsókn á sjúklingum þar sem borin er saman virkni og öryggi AVT03 og Prolia stendur nú yfir, og jafnframt önnur rannsókn á lyfjahvörfum þar sem borin eru saman AVT03 og Xgeva í heilbrigðum einstaklingum. AVT03 er líftæknilyfjahliðstæða í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.
[1] https://www.ema.europa.eu/is/documents/product-information/prolia-epar-product-information_is.pdf
[2] https://www.ema.europa.eu/is/documents/product-information/xgeva-epar-product-information_is.pdf