Alvotech (NASDAQ: ALVO) fundar með fjárfestum á heilbrigðisráðstefnu fjárfestingabankans Jefferies, í London dagana 19.- 20. nóvember n.k. Stjórnendur Alvotech munu einnig flytja kynningu á ráðstefnunni þriðjudaginn 19. nóvember n.k. kl. 9:00 – 9:25 að íslenskum tíma.
Hægt verður að hlýða á hljóðupptöku af kynningunni í beinu streymi og að ráðstefnunni lokinni verður upptaka aðgengileg á vefsíðu félagsins í 90 daga. Allar upplýsingar um hvernig tengjast má streyminu eða hlýða á upptökuna eru á fjárfestasíðu Alvotech á slóðinni News and Events – Events and Presentations.