Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2023 eftir lokun markaða í Bandaríkjunum, fimmtudaginn 18. maí 2023. Þá mun Alvotech halda kynningarfund fyrir fjárfesta í beinu streymi föstudaginn 19. maí nk. kl. 12:00 að íslenskum tíma.
Streymi af kynningarfundinum, sem fer fram á ensku, verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Alvotech, https://investors.alvotech.com undir News and Events – Events and Presentations. Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið sem aðgengileg verður í 90 daga.